02.09.2010 14:06:27 / 5flvals
Æfingar á nyju tímabili hjá þeim sem verða áfram í 5. fl. (fæddir 1999) hefjast mánudaginn 6. sept. kl. 17.00-18.00
»
01.09.2010 21:50:56 / 5flvals
Nýtt tímabil hefst í fótboltanum hjá þeim sem eru fæddir 1999 og verða áfram í 5. fl hefst mánudaginn 6. sept með æfingu kl. 17-18.00
»
22.08.2010 19:47:43 / 5flvals
Æfingar í þessari viku verða sem hér segir;
mánudag, miðvikud. og föstudagur kl. 16.30-17.30
»
20.08.2010 13:26:58 / 5flvals
Yngri flokkarnir á aðalvellinum í alvöru umgjörð!
Á næstunni munu fjórir af yngri flokkum Vals í knattspyrnu leika heimaleiki sína á aðalvelli félagsins, sjálfum Vodafone vellinum. Öll umgjörð leikjanna verður hin glæsilegasta, líkt og við Valsmenn þekkjum frá heimaleikjum okkar. Félagið skorar á stuðningsmenn, foreldra og iðkendur í öllum flokkum að fjölmenna á völlinn þessa leikdaga, skemmta sér og hvetja Val til sigurs.
Þessir leikir eru eftirfarandi:
laugardagur 21. ágúst kl.12:00: Valur - ÍA, 3.fl.kv.
þriðjudagur 24. ágúst kl. 17:00: Valur - FH, 4.fl.kv. A; kl. 18:20: 4.fl.kv. B
fimmtudagur 26. ágúst kl. 17:00: Valur - ÍR, 4.fl.ka. A; kl.18:20: 4.fl.ka. B
þriðjudagur 31. ágúst kl.18:00: Valur- Njarðvík, 3.fl.ka
Heiðursgestir á hverjum leik verða tveir leikmenn úr meistaraflokkum félagsins sem heilsa munu upp á leikmenn um leið og leikmenn verða kynntir. Í hálfleik hvers leiks mun 10 áhorfendum, iðkendum úr 5-8 flokki félagsins, gefast kostur á að skora úr vítaspyrnu hjá meistaraflokksmarkmönnum og hljóta þeir sem það tekst, 1,500 kr. vöruúttekt úr Partýbúðinni.
Emmessís býður öllum iðkendum yngri flokka ókeypis ís í öllum leikjum og Fálkarnir selja SS pylsur í Myllubrauði af grillinu til styrktar unglingastarfi félagsins.
Komið og takið þátt í þessari einstöku upplifun ungra iðkenda okkur, jafn framtíðarleikmanna meistaraflokks svo og hinna sem leika munu einn eftirminnilegasta leik ævinnar! Við byrjum á hádegi menningardags (laugardag) með nýkrýndum Dana-Cup meisturum 3 flokks kvenna og síðan rekur hver leikurinn annan næstu 10 daga.
Fálkarnir munu leiða kröftugt ÁFRAM VALUR úr stúkunni! Koma svo, allir með!
»
02.08.2010 11:50:02 / 5flvals
Æfingar hefjast að nýju á morgun, þriðjudag kl. 14.15 eins og venjulega
»
23.07.2010 18:13:05 / 5flvals
Frí á æfingum í næstu viku þ.e. mánudag - fimmtudags
»
10.07.2010 00:32:05 / 5flvals
Mánudaginn 12 júlí er leikur hjá 5. fl við íA á Akranesi. Strákarnir eiga að mæta að Hlíðarenda kl. 14.45 með 1.000 kr og hollt og gott nesti. Komið er tilbaka um kl. 19.00. Farið verur með rútu.
»
27.06.2010 19:48:05 / 5flvals
Sælir ágætu forráðamenn stráka í 5. fl. Vals
Nú er N1-mótið alveg að skella á. Í tilefni af því er rétt að koma nokkrum atriðum á framfæri:
1. Ferðatilhögun.
Gert er ráð fyrir að forráðamenn sjái um að koma drengjunum til Akureyrar og til baka. Þetta gafst vel síðasta sumar og ætti að ganga nú. Mótið byrjar miðvikudaginn 30. júní kl. 15.00. Strákarnir þurfa að vera komnir í Lundaskóla á KA-svæðinu kl. 13.45. Þar þurfa þeir að koma sér fyrir og síðan tilkynnir Agnar skipan liðanna. Fyrsti leikur A-liðs Vals er strax kl. 15.00 þann dag þannig að mikilvægt er að allir strákarnir séu komnir í skólann á réttum tíma. Foreldrar sem ætla að leggja af stað samdægurs þurfa því að koma sér af stað um kl. 8.oo (leiðbeinandi tímasetning m.v. löglegan umferðarhraða og stuttar hvíldir).
Þess er vinsamlegast farið á leit að foreldrar sem fara norður og hafa laust far fyrir einn eða fleiri stráka sendi mér sam allra fyrst tilkynningu um það. Þeir foreldrar sem ekki fara norður og vantar enn far fyrir sinn dreng eru sömuleiðis beðnir um að tilkynna mér það sem allra fyrst. Ég mun síðan reyna að koma á samskiptum milli þeirra sem eru aflögufærir um far og þeirra sem vantar far.
2. Gisting og fatnaður.
Strákarnir gista sem fyrr segir í Lundaskóla sem er rétt við keppnissvæðið. Strákarnir þurfa að koma með dýnu, kodda, og sæng eða svefnpoka, keppnispeysu, hvítar keppnisbuxur og rauða sokka. Æfingagalla og regnfatnað. Einnig sundfatnað, sokka til skiptanna og hlý föt til að vera í á milli leikja og á kvöldin.
3. Matur.
KA sér strákunum fyrir morgunverði, hádegismat og kvöldverði. Reynslan segir okkur að strákarnir þurfa mikið eldsneyti á mótinu og því förum við norður með ávexti, drykki, brauð og álegg. Þess er óskað að drengirnir mæti með eina einingu af bakkelsi (kleinur, snúða, múffur) sem sett verður í sameiginlegan bakkelsissjóð.
Þeir sem hafa góð sambönd og geta útvegað drykki, ávexti, brauð eða álegg, ókeypis eða á góðu verði eru beðnir um senda mér póst.
4. Skipulag mótsins.
Talsverðar upplýsingar um skiptingu í riðla, leikjaniðurröðun o.fl. eru nú komnar inn á heimasíðu N1-mótsins og bið ég ykkur um að kynna ykkur þessar upplýsingar http://www.ka-sport.is/n1motid/
Nefna má að Valsliðin munu spila sem A, C, D, E og F lið en þetta er alfarið ákvörðun þeirra KA-manna.
Vonandi fá öll liðin mótherja við sitt hæfi. Agnar ræður alfarið skiptingu í lið. Strákarnir verða væntanlega misjafnlega ánægðir með niðurstöðuna en við skulum öll leggja okkur fram við að þeir sætti sig við þá ákvörðun. Ég hvet alla foreldra til að mæta á vellina þegar Valsliðin eru að spila og hvetja ekki aðeins sitt lið heldur einnig hin Valsliðin hvort sem um er að ræða A eða F lið. Öll liðin þurfa jafnt á hvatningu að halda. Minni
5. Tjaldstæði fyrir forráðamenn
Ég hef þegar sent póst norður og óskað eftir að tekið verði frá svæði fyrir Valsforeldra á tjaldstæðinu við Þórunnarstræti. Ef þið viljið nota það tjaldstæði skulið þið spyrja eftir Valssvæðinu.
6. Liðsstjórar
Ekki liggur enn fyrir hvaða liðsstjórar fylgja hverju liði.
Nöfn og símanúmar liðsstjóra verða tilkynnt síðar.
7. Greiðsla á kostnaði.
Vinsamlegast greiðið þátttökukostnað kr. 23.000 sem allra fyrst inn á reikning Guðmundar Guðnasonar nr. 0116-26-1604, kt. 120263-4129
8. Keppnispeysur.
Þessi mál mættu vera í betra standi hjá Val. Síðust fréttir af keppnispeysunum eru þær að forráðamenn stráka sem ekki eru með tölustafinn 2 í númeri geti mætt strax á morgun með kvittun fyrir félagsgjöldum (úr heimabanka) í búðina í Valsheimilinu og náð í keppnistreyjuna. Tölustafurinn 2 er væntanlegur strax eftir helgi og þá geta þeir sem eru með þá tölu í númerinu líka sótt sína keppnispeysu gegn framvísun á kvittun.
Man ekki eftir fleiru í bili.
Kveðja
Sigurður Tómas Magnússon
s: 820-6279
P.S.
Hér kemur svo leikjaplanið hjá Valsliðunum:
A-lið. Valur
mið 15:00 V3 A Valur - Leiknir R
18:30 V3 A BÍ-Bolungarvík - Valur
fim 08:35 V2 A Valur - Fjarðabyggð
12:05 V1 A Breiðablik - Valur
15:35 V2 A Valur - ÍBV
föst 08:35 V3 A Keflavík - Valur
C-lið. Valur
mið 16:10 V3 C Valur - Leiknir R
19:40 V3 C BÍ-Bolungarvík - Valur
fim 09:45 V2 C Valur - Fjarðabyggð
13:15 V1 C Breiðablik - Valur
16:45 V2 C Valur - ÍBV
föst 09:45 V3 C UMF Álftanes - Valur
D-lið. Valur
mið 16:45 V3 D Valur - Stjarnan 2
20:15 V3 D BÍ-Bolungarvík - Valur
fim 10:20 V2 D Valur - Grindavík
13:50 V1 D Breiðablik - Valur
17:20 V2 D Valur - Haukar 2
föst 10:20 V3 D Keflavík - Valur
E-lið. Valur
mið 17:20 V3 E Valur - Leiknir R
20:50 V3 E UMF Álftanes - Valur
fim 10:55 V2 E Valur - Keflavík
14:25 V1 E Breiðablik - Valur
17:55 V2 E Valur - ÍBV
föst 10:55 V3 E Tindastóll - Valur
F-lið. Valur
mið 17:55 V3 F Valur - Breiðablik3
21:25 V3 F BÍ-Bolungarvík - Valur
fim 11:30 V2 F Valur - Fjarðabyggð
15:00 V1 F Breiðablik - Valur
18:30 V2 F Valur - ÍBV
föst 11:30 V3 F Grindavík - Valur
»
17.06.2010 15:37:39 / 5flvals
Á morgun, föstudaginn 18. júní er leikur við Breiðablík á Smárahvammsvelli. A og C-lið eiga að mæta kl. 15.30 og b og D-lið mæta kl. 16.20. þer sem eiga að mæta eru þeir sem mættu á leikina við Fjölni. Nauðsynlegt er að þeir sem ekki komast láti vita.
»
14.06.2010 17:42:28 / 5flvals
Minni á foreldrafund kl. 21.00 strx á eftir leik Vals og Selfoss í m.fl. karla.
»
08.06.2010 10:26:38 / 5flvals
Rétt er að taka fram að breytingar hafa orðið á leikjum á Íslandsmótinu í 5.fl.
Næsti leikur er miðvikudaginn 9. júní í Firðinum
11. júní á Hlíðarenda við ÍBV kl. 14.00 og 14.50
16. júní við Fjölni Hlíðarenda kl. 17 og 17.50
18. júní við Breiðablik (sennilega um kl. 13.00 og 13.50)
»
31.05.2010 12:52:15 / 5flvals
Vinstra megin á síðunni er tenglar og þ.a.m. uppl. um Íslandsmótið. Rétt að taka það fram að leikur sem skráður er 23. júní - verður breytt en það liggur ekki fyrir hver breytingin verður
»
27.05.2010 13:14:39 / 5flvals
Mér fannst leikurinn á móti Keflavík ganga sæmilega. Við hefðum samt getað gert miklu betur. Þegar við misstum boltann gáfumst við upp og reyndum sjaldan að ná honum aftur. Varnarleikurinn var ekki okkar besti og við fengum því þrjú mörk á okkur en sóknarleikurinn var fínn og við skoruðum 2 mörk.
Hrólfur Eyjólfsson
»
27.05.2010 10:44:48 / 5flvals
Við unnum leikinn 4-2.
Við spiluðum vel og vorum yfir í hálfleik 3-0 en þeir komust aðeins
inni í leikinn í seinni hálfleik.
Við vorum með boltann svona 53 % í leiknum.
Í heildina spiluðum við vel Árni góður í markinu og allir voru góðir í leiknum.
Þetta var sem sagt mjög góður leikur.
»
30.04.2010 12:40:41 / 5flvals
Sunnudaginn 2 maí er síðasti leikur 5. fl. í Reykjvíkurmótinu í knattspyrnu. Þeir sem boðaðir voru í gær eiga að mæta sem hér segir; A og C-lið eiga að mæta kl. 12.30 og þeir sem boðaðir voru í Bog D-lið eiga að mæta kl. 13.20.
Stefnt er að því að föstudaginn 14. maí gisti flokkurinn í Vodafonehöllinni yfir nótt þar sem spilaður verður fótbolti og farið í ýmsa leiki. Þeir strákar sem vilja vera með eru beðnir að skrá sig hér og einnig þeir foreldrar sem tilbúnir eru til að gista með strákunum.
»
Síður:
1 2 3 ...
9